Total Pageviews
Monday, May 17, 2010
Stundum er þetta brekka
Það er skrýtið hvað lífið er stundum eins og brekka upp í móti. Það þarf ekki að vera neitt mikið sem er að gera manni lífið leitt. Ekkert annað an smáatriði hversdagsins en engu að síður verða hlutirnir manni þyngri en þeir ættu að vera. Núna er eitt svona tímabil hjá mér. Hlutirnir eru einfaldlega ekki að ganga upp eins og maður vildi. Ég er þreyttur og styttra í þræðinum sem venjulega er frekar langur hjá mér, vinnuafköstin smánarlega lítil og sjáfsvorkunin er á einhvern skrýtinn og furðulegan hátt það sem veitir manni mesta fróun. Það er á svons stundum sem manni líkar hvað verst við mann sjálfan. Eiginlega á maður að einangra sig, lesa bók eða fara í sund. Gera eitthvað til þess að losna við sjáfsvorkunina. Bara svo þið vitið það þá hata ég sjálfsvorkunina. Sem þýðir að í dag líkar mér ekkert sérstaklega vel við sjálfan mig. Ég er hinsvegar búinn að skipuleggja morgundaginn með það að markmiði að rífa mig upp úr þessu volæði.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment