Það má eiginlega segja að ég hafi verið að missa mig síðustu mánuði. Verið nánast ófær um að hreyfa mig vegna meiðsla og þar af leiðandi bætt verulega á mig. Núna í dag. 3. október 2010 er kominn tími til þess að snúa dæminu við. Vandamálið er nefnilega það að ég verð bara ekki bara þyngri á voginni heldur einni í sinni. Auk þess sem starfsþrek mitt verður minna með þessu öllu saman. Núna verður þessu snúið við. Einnig á þetta að verða árangursdagbók mín. og hverju áorkaði ég í síðustu viku?
- Stóð mig vel í samantek á rástefnunni Samstarf og samræða skólastiga hér á Akureyri.
- kláraði kynningu og fékk 5 einstaklinga í nám
- hélt frábært partý með samstarfsfólki mínu
- þvoði gluggana á húsinu
- kláraði kynningu á stefnu SN með hljóðfæraleikurum
- kláraði að greina samtal við Ragnar í ritgerðinni minni
- hélt 2 kynningar hjá fyrirtækjum
- fékk vilýrði fyrir 3 í viðbót.
Núna er bara semsagt að hreyfa sig og halda áfram að klára hluti og koma þeim í verk.
Staðan í þyngdini er nún 106 kg. Núna skal það verða lagað og stefnan tekin á 100 til að byrja með. Helst fyrir jól. Vonandi gengur það nú allt upp.
Bullið búið í dag.