Total Pageviews

Saturday, May 15, 2010

Góðan dag

Hér á þessari síðu er það ætlun mín að rita um það sem vekur mig til umhugsunar. Stundum mun ég ef til vill skrifa eitthvað um það sem ég er að gera hverju sinni en ykkar vegna, sem ef til vill lesið þetta, hef ég ætlað mér að hafa það sem minnst. Það á segja að ég noti þessa síðu helst til þess að koma skipulagi á hugsanir mínar og skoðanir. En það má segja að um þessar mundir sé mikið sem maður þarf að taka afstöðu til. Manni er oft hugsað til siðferðis og sannast sagna verð ég oft gáttaður á því hvað lítið er um að fólk líti í eigin barm í dag áður en það bendir á aðra og fellir dóma sem beinast fyrst og fremst að siðferðisvitund. Dæmi um þetta er hópur fólks sem stóð fyrir utan heimili annara, til dæmis Þorgerðar Katrínar og Kristjáns Arasonar. Sá hópur, í sjálfhverfu sinni, hikaði ekki við að hræða börn þeirra hjóna og gera þessa daga að martröð fyrir saklaus börn. Annað dæmi er að nú erum við reið og sár yfir því hvernig að hinir margumtöluðu útrásarvíkingar fóru með okkur, hristum hausinn yfir spillingu ráðamanna, bísnumst yfir ástandinu í Grikklandi og hugsum jafnvel hversu heppin við erum þó að vera ekki þar. Á sama tíma og við erum næstmestu hugbúnaðarþjófar Evrópu. Bara Grikkir eru verri.
Nú er mál að linni í bili en þetta ætti að gefa tóninn í bili

No comments:

Post a Comment