Total Pageviews

Sunday, October 3, 2010

Átak

Það má eiginlega segja að ég hafi verið að missa mig síðustu mánuði. Verið nánast ófær um að hreyfa mig vegna meiðsla og þar af leiðandi bætt verulega á mig. Núna í dag. 3. október 2010 er kominn tími til þess að snúa dæminu við. Vandamálið er nefnilega það að ég verð bara ekki bara þyngri á voginni heldur einni í sinni. Auk þess sem starfsþrek mitt verður minna með þessu öllu saman. Núna verður þessu snúið við. Einnig á þetta að verða árangursdagbók mín. og hverju áorkaði ég í síðustu viku?

  • Stóð mig vel í samantek á rástefnunni Samstarf og samræða skólastiga hér á Akureyri.
  • kláraði kynningu og fékk 5 einstaklinga í nám
  • hélt frábært partý með samstarfsfólki mínu
  • þvoði gluggana á húsinu
  • kláraði kynningu á stefnu SN með hljóðfæraleikurum
  • kláraði að greina samtal við Ragnar í ritgerðinni minni
  • hélt 2 kynningar hjá fyrirtækjum
  • fékk vilýrði fyrir 3 í viðbót.

Núna er bara semsagt að hreyfa sig og halda áfram að klára hluti og koma þeim í verk. 

Staðan í þyngdini er nún 106 kg. Núna skal það verða lagað og stefnan tekin á 100 til að byrja með. Helst fyrir jól. Vonandi gengur það nú allt upp.

Bullið búið í dag.


No comments:

Post a Comment